Í vikunni útskrifuðust nemendur af vorönn úr Sjávarakademíunni. Þá kynntu nemendur lokaverkefni sín fyrir kennurum, nemendum og stjórnendum. Segir í tilkynningu forsvarsmanna akademíunnar að ánægjulegt var að sjá hvað hópurinn var meðvitaður um vitundarvakningu í umhverfismálum og voru búin að hugsa viðskiptahugmyndirnar sínar vel til enda með sjálfbærni í huga.

Þetta var í annað skiptið sem boðið er upp á námsleiðina í fullu annarnámi en markmið Sjávarakademíunnar er að efla þekkingu og áhuga á stofnun fyrirtækja og nýsköpun sem tengist bláa hagkerfinu.

„Við erum sérstaklega stolt af þessum hópi útskriftarnemenda. Viðskiptahugmyndirnar, sem nemendurnir kynntu, voru afar áhugaverðar, og hlakka ég til að sjá þær komast í framkvæmd á næstu misserum,“ segir Berta Danielsdóttir framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans og leiðbeinandi Sjávarakademíunnar.

„Nám í Sjávarakademíunni er mjög góð viðbót fyrir annars fjölbreytt nám í Fisktækniskóla Íslands,“ bætir Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari Fisktækniskóla Íslands, við í tilkynningu.

Sjávarakademían er samstarfsverkefni Fisktækniskóla Íslands og Íslenska sjávarklasans og fer kennsla fram í Húsi sjávarklasans við Gömlu höfnina í Reykjavík. Námið er á framhaldsskólastigi og vonast forsvarsmenn til að námið festi sig í sessi sem valmöguleiki fyrir þá sem vilja kynnast bláa hagkerfinu betur.