Fulltrúar VÍS færðu Slysvarnaskóla sjómanna tíu björgunargalla að gjöf nú í september. Þetta er í samræmi við samstarfssamning sem endurnýjaður var í vor til þriggja ára.  Skólinn hefur nú fengið 50 galla frá VÍS á undanförnum árum.

„Gallarnir eru í stöðugri notkun enda sækja um 2.500 nemendur námskeið okkar á hverju ári. VÍS hefur stutt dyggilega við bak Slysavarnaskólans um árabil og lagt mikið af mörkum í baráttunni fyrir auknu öryggi um borð í íslenska flotanum. Ekki bara með þessari árlegu gjöf heldur einnig markvissu forvarnarstarfi hjá viðskiptavinum sínum sem við veitum lið,“ segir Hilmar Snorrason skólastjóri.

Undanfarna áratugi hefur banaslysum til sjós fækkað hratt. Á árunum 1971 – 1980 voru þau 203, 116 áratugnum síðar, 63 banaslys frá 1991 – 2000 og 21 á fyrsta áratug þessarar aldar. Öðrum slysum á hafi úti hefur einnig fækkað. Engu að síður er mikið verk að vinna samanber að í fyrra voru á þriðja hundrað slys til sjós skráð hjá Sjúkratryggingum Íslands.