Stíganda VE-77 verður lagt 10. nóvember 2014 vegna hagræðingar í útgerðarrekstri Vinnslustöðvarinnar. Áhöfninni, 12 manns, var af því tilefni sagt upp störfum í dag.

Frá þessu er greint á vef Vinnslustöðvarinnar, www.vsv.is .

Þessi ákvörðun var birt áhöfn Stíganda og tekið fram um leið að sjómennirnir njóti forgangs þegar ráðið verður í önnur störf sem kunna að losna hjá félaginu.

Þá var þess og getið að Stígandi kunni að verða gerður út að nýju til humarveiða í apríl 2015. Ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum en möguleikinn er fyrir hendi eins og staðan er nú.