Um þessar mundir fagnar Fiskvinnslan Íslandssaga ehf. á Suðureyri 25 ára afmæli sínu. Fyrirtækið festi nýlega kaup á Marel vinnslulínu frá Stakkavík ehf. í Grindavík sem verður sett upp yfir hátíðirnar. Bæjarins besta segir frá þessu.
Um 20. desember verður allt tekið úr vinnslusalnum og þegar starfsfólk kemur til vinnu 6. janúar næstkomandi verður nýja línan komin upp og tilbúin. Nýja línan bætir nýtinguna töluvert og eykur afköstin um 30%. Kostnaður er áætlaður verða um 250 milljónir kr. og segir Jón Arnar í samtali við bb.is að auknar tekjur af bættri nýtingu muni greiða kostnaðinn upp á rúmlega 2 árum. Framleiðsluaukningin muni auk þess gera fyrirtækinu kleift að vinna meira af þeim afla sem það hefur yfir að ráða og þarf því að senda frá sér minna en verið hefur.
Á undanförnum tveimur árum hafa flökunarvélar , roðflettvélar og aðbúnaður í móttöku og kælum verið endurnýjaður.
Ingólfur Þorleifsson yfirvélstjóri sagði frá endurbótum og vinnslu meðal annars roðtöku á stórum þorski fyrir Kerecis.
Stærsti eigandinn er Norðureyri ehf. á Suðueyri með 73%. Aðrir eigendur eru Flugaldan ehf sem á 8% og Hvetjandi 19%. Fyrirtækið hefur aðgang að tveimur bátum með um 1.600 tonna kvóta. Tekjur félagsins á síðasta ári voru um 2 milljarðar króna. Framkvæmdastjóri er Óðinn Gestsson og stjórnarformaður Guðni A. Einarsson.