Sökum fjöldatakmarkana vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar var heiðrunarathöfn Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins á sjómannadaginn með óhefðbundnu sniði í ár.
Þar sem þurfti að fella niður Hátíð hafsins hélt Sjómannadagsráð þess í stað látlausa athöfn í þjónustumiðstöðinni Sléttunni á Sléttuvegi fyrir sjómenn sem skarað hafa fram úr og skilað af sér farsælu starfi. Heiðraðir voru Guðlaugur Jónsson, Árni Sigurbjörnsson, Benedikt Svavarsson, Jón Bjarnason og Ólafur Theódór Skúlason.
Hefð hefur verið fyrir því við heiðranir síðustu ára að karlakór flytji viðeigandi sönglög, en í ljósi takmarkana var nú ákveðið að sníða athöfninni stakk eftir vexti og var Gissur Páll Gissurarson fenginn til að þenja raddböndin fyrir viðstadda. Babb kom þó í bátinn því ekkert píanó var til staðar á Sléttunni og því örðugt um undirleik.
Í tilkynningu segir:
„Fulltrúar Sjómannadagsráðs settu sig því í samband við stórútgerðarmanninn Guðmund Kristjánsson í Brimi og sögðu honum frá málavöxtum. Guðmundur er vanur því að láta hendur standa fram úr ermum og brást fljótt við til að glæða mætti þjónustumiðstöðina tónum og lífi. Festi hann kaup á stórgóðri slaghörpu af gerðinni Kawai, sem var svo vígð af Bjarna Frímanni Bjarnasyni, hljómsveitarstjóra og píanóleikara, sem annaðist undirleik við athöfnina,“ segir Aríel Pétursson, varaformaður Sjómannadagsráðs.
„Ljóst er að þessi höfðinglega gjöf Kristjáns mun nýtast gestum þjónustumiðstöðvarinnar á Sléttunni og íbúum á Hrafnistu Sléttuvegi við margvísleg tilefni um ókomna tíð. Kann Sjómannadagsráð Guðmundi Kristjánssyni í Brimi bestu þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf.“