Á fyrstu 9 mánuðum ársins er hefur útfltuningsverð á söltuðum grásleppuhrognum hækkað um 9% miðað við sama tímabil í fyrra. Þar er meðtalin breyting á meðalgengi evrunnar á þessum tíma. Hér er um sérlega ánægjulegar fréttir að ræða þar sem verðið var komið niður fyrir öll skynsemismörk, að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda.

Því miður er ekki sömu sögu að segja um grásleppukavíarinn. Þar virðist verðið enn vera á niðurleið. Munar þar mestu um mikla verðlækkun á franska markaðinum, sem er stærstur markaðar fyrir grásleppukavíar.

Útflutningsverðmæti saltaðra grásleppuhrogna og kavíars á fyrstu níu mánuðu ársins er 679 milljónir.