Sjómannasamband Íslands, Sjómannafélag Íslands og VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna tóku þá ákvörðun að slíta kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) í dag, að því er segir í fréttatilkynningu frá SFS.
Vegna þeirra miklu hagsmuna sem samfélagið allt hefur af því að verkfall sjómanna taki enda, telur SFS ábyrgð verkalýðsfélaganna ríka. Sjómenn og sjávarútvegsfyrirtæki hafi falið samninganefndum að ná ásættanlegum kjarasamningi og undan því verkefni leysi aðilar sig ekki með því að ganga frá samningaborði.
„Í kjarasamningnum, líkt og samningum almennt, ber samningsaðilum að taka tillit til hvers annars og huga að hverju því málefnalega sjónarmiði sem gagnaðili setur fram. Í kjaraviðræðum SFS og samtaka sjómanna, hvort heldur viðræðum í aðdraganda samninganna tveggja sem sjómenn felldu á liðnu ári eða í þeirri samningalotu sem samtök sjómanna hafa nú gengið frá, hefur SFS unnið í samræmi við þessa grunnreglu. Verkalýðsfélögin þrjú hafa fengið ríka áheyrn um allar þær kröfur sem þau hafa sett fram og ríkur vilji hefur verið af hálfu SFS til að koma til móts við margar þeirra.
Tillitið hefur ekki verið gagnkvæmt og verkalýðsfélögin hafa því miður ekki léð máls á málefnalegum sjónarmiðum SFS. Það er miður að þau treysti sér ekki til að ræða allar hliðar kjaramála. Ljóst má vera að ógerlegt er að ganga að öllum kröfum þeirra,“ segir einnig í tilkynningunni frá SFS.