Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var í dag, 3. apríl 2013, var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðri og óslægðri ýsu um 10%. Jafnframt var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á karfa um 10%.

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. apríl 2013.

Úrskurðarnefndin ákvað síðast verðbreytingu á fiski hinn 1. mars sl. Þá var verð á slægðum og óslægðum þorski lækkað um 10% að meðaltali. Ennfremur var ákveðin 10% lækkun á verði karfa og óslægðrar ýsu, en ufsaverð var hækkað um 3%.