Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var í dag, 3. febrúar, var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski um 5%.
Jafnframt er viðmiðunarverð fyrir slægða og óslægða ýsu hækkað um 10%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða er seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. febrúar 2014.