Bilun varð í kælivatnsdælu fyrir aðalvélina í Gullveri NS þegar skipið var á veiðum á Tangaflaki. Vestmannaey VE tók skipið í tog og komu þau til hafnar í Neskaupstað á mánudagsmorgun og sólarhring síðar kom Bergur VE þangað til löndunar.

Rætt er við skipstjóra skipanna þriggja á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

„Við vorum komnir með 60 tonna afla, nær eingöngu þorsk og ýsu, þegar bilunin átti sér stað. Vestmannaey var ekki langt frá okkur og ákveðið var að hún tæki okkur í tog. Gert er ráð fyrir að viðgerð ljúki í kvöld og þá verður haldið á ný til veiða,” segir Þórhallur Jónsson skipstjóri á Gullveri NS.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að veiðiferðin hjá þeim hafi fengið óvænt endalok. „Við höfðum verið að veiðum í Norðfjarðardýpi og á Gerpisflaki þegar beiðni um aðstoð kom frá Gullveri. Í upphafi túrsins var blíða en þegar haldið var til aðstoðar Gullveri var kominn kaldaskítur. Aflinn sem við vorum komnir með var um 55 tonn, mestmegnis ýsa,” segir Birgir Þór.

Bergur VE kom til löndunar í gærmorgun með fullfermi. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að veður hafi verið þokkalegt í veiðiferðinni þar til brældi í blárestina. „Við vorum fyrst að veiðum á Glettinganesflaki, síðan á Gerpisflaki og loks á Tangaflaki. Mestur aflinn fékkst á Gerpisflaki og má segja að hann hafi skiptst til helminga, þorskur og ýsa,” segir Jón.

Bergur hélt til veiða á ný sl. nótt og Vestmannaey í morgun. Gert er ráð fyrir að þau landi í heimahöfn í Eyjum fljótlega eftir helgi.