Afli íslenskra fiskiskipa var 88.800 tonn í apríl sem er 21% minni afli en í apríl 2019. Þorskafli var álíka og í apríl 2019 á meðan verulegur samdráttur varð í veiðum á ýsu, ufsa og karfa.
Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.
Þar segir að samdráttur varð einnig í uppsjávarafla þar sem landað magn kolmunna dróst saman um 31%. 3.601 tonnum var landað af grásleppu og rauðmaga í apríl, þar af var tæplega 60% landað á Norðurlandi sem er nokkur aukning miðað við fyrri ár.
Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá maí 2019 til apríl 2020 var 966.000 tonn sem er 13% minni afli en á sama tímabili ári fyrr.
Afli í apríl, metinn á föstu verðlagi, var 12,4% minni en í apríl 2019.