Á síðasta fiskveiðiári var fluttur út óunnin afli á erlenda fiskmarkaði með veiðiskipum og fragtskipum að verðmæti 12.266 miljónir króna. Verðmæti útflutts óunnins afla jókst um rúm 20% milli síðustu tveggja fiskveiðiára. Í magni talið óx útflutningurinn úr 49.600 tonnum í 56.500 tonn sem er aukning uppá tæp 14%. Af einstökum tegundum vegur ýsan þyngst eins og undanfarin fiskveiðiár.
Útfluttur ýsuafli fiskveiðiárið 2006/07 var rúmlega 17 þúsund tonn að verðmæti 3.203 miljónir króna en var tæplega 28 þús. tonn fiskveiðiárið 2007/08 að verðmæti 4.672 miljónir króna.
Vestmannaeyjarhöfn er mesta útflutningshöfn fyrir óunnin afla með fraktskipum enda liggur hún best íslenskra hafna við erlendu ferskfiskmörkuðunum . Á síðasta ári var flutt út af óunnum afla frá Vestmannaeyjum alls 21.800 tonn fyrir 4.718 miljónir króna. Í magni talið var þetta rúmlega 38% af öllum óunnum afla sem fór á erlenda ferskfiskmarkaði.
Magn og verðmæti afla sem fluttur var á erlenda fiskmarkaði af skipum frá Vestamannaeyum og af öllum skipum er hægt að skoða á vef Fiskistofu, HÉR