Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað verkefnisstjórn til að koma með tillögur um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni. Sérstakur samráðshópur skipaður fulltrúum allra þingflokka og helstu hagaðila mun starfa með verkefnisstjórninni. Gert er ráð fyrir að verkefnisstjórnin skili skýrslu til ráðherra á haustmánuðum 2019.

Í janúar sl. gaf Ríkisendurskoðun út skýrslu þar sem farið er yfir hlutverk og rekstur Fiskistofu , eftirlit með vigtun sjávarafla, með brottkasti og með samþjöppun aflaheimilda. Það er niðurstaða Ríkisendurskoðunar að ráðast þurfi í ýmsar úrbætur til að Fiskistofa geti sinnt þeim viðfangsefnum, sem henni er falið samkvæmt lögum, með skilvirkum og árangursríkum hætti. Verkefnisstjórninni er m.a. ætlað að bregðast við þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni.

Verkefnisstjórnin er skipuð eftirtöldum:

Sigurður Þórðarson fv. ríkisendurskoðandi, formaður

Brynhildur Benediktsdóttir sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi

Hulda Árnadóttir lögmaður

Oddný G. Harðardóttir alþingismaður

Samráðshópurinn er skipaður eftirtöldum:

Sigurður Þórðarson, skipaður formaður án tilnefningar

Árni Bjarnason, tilnefndur af Félagi Skipsstjórnarmanna

Guðmundur Helgi Þórarinsson, tilnefndur af Félagi vélstjóra og málmtæknimanna

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir tilnefnd af Fiskistofu

Lúðvík Geirsson, tilnefndur af Hafnasambandi Íslands

Ingibjörg G. Jónsdóttir, tilnefnd af Hafrannsóknastofnun

Guðríður Kristjánsdóttir, tilnefnd af Landhelgisgæslu Íslands

Axel Helgason, tilnefndur af Landssambandi smábátaeigenda

Jónas R. Viðarsson, tilnefndur af Matís ohf.

Dóra S. Gunnarsdóttir, tilnefnd af Matvælastofnun

Arnar Atlason, tilnefndur af Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi

Bárður Guðmundsson, tilnefndur af Samtökum smærri útgerða

Valmundur Valmundsson, tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands

Magnús Þór Hafsteinsson, tilnefndur af þingfl. Flokks fólksins

Karitas Ríkharðsdóttir, tilnefnd af þingfl. Framsóknarflokksins

Guðbrandur Björgvinsson, tilnefndur af þingfl. Miðflokksins

Valgerður Árnadóttir, tilnefnd af þingfl. Pírata

Oddný G. Harðardóttir, tilnefnd af þingfl. Samfylkingarinnar

Njáll Trausti Friðbertsson, tilnefndur af þingfl. Sjálfstæðisflokksins

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, tilnefnd af þingfl. Viðreisnar

Lilja Rafney Magnúsdóttir, tilnefnd af þingfl. Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs