Aðgerðin felur í sér að sett er af stað átak til 3 – 5 ára til allsherjarhreinsunar strandlengjunnar af plasti og öðrum úrgangi.

Í tilkynningu segir að hreinleiki sjávar sé Íslandi afar mikilvægur og strandhreinsanir gegni þar veigamiklu hlutverki. Tilgangurinn með styrkveitingunum er sá að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulegum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, efla vitundarvakningu hjá almenningi um mikilvægi strandhreinsana og virkja áhugasama aðila til þátttöku í átaki um hreinsun strandlengjunnar.

„Það þarf ekki að fara mörgum orðum um mikilvægi þess að draga úr plastmengun á ströndum og á hafi. Frjáls félagasamtök og sjálfboðaliðar hafa gegnt lykilhlutverki við þessa hreinsun. Við viljum styðja þau í þessu verki,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Styrkirnir voru auglýstir þann 10. nóvember 2021 og bárust fjórar umsóknir um styrki. Heildarstyrkupphæð er 20 milljónir króna.

Eftirtalin verkefni hlutu styrk  til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands: Blái herinn hlaut 7,5 milljón króna styrk og Veraldarvinir hlutu sömu upphæð. Verkefnin Ocean Missions og Seeds fengu 2,5 milljónir króna hvort í sinn hlut.