Íslenski sjávarklasinn veitir á hverju ári sérstakar viðurkenningar til fólks eða fyrirtækja sem eflt hefur fyrir samstarf innan klasans en klasahugmyndafræðin gengur út á að efla samstarf og skapa þannig verðmæti.

Að þessu sinni eru þrír aðilar sem hljóta viðurkenningar. Þessir aðilar eiga það sameiginlegt að hafa stuðlað að öflugra samstarfi fólks innan sjávarklasans á Íslandi og stuðlað að aukinni verðmætasköpun í því frumkvöðlasamfélagi sem hefur verið til staðar í Húsi sjávarklasans.

Í fyrsta lagi fær Sjávarútvegsráðstefnan viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf við að tengja fólk í sjávarútvegi saman með árlegri ráðstefnu sem nú hefur verið haldin í áratug. Sjávarútvegsráðstefnan hefur stuðlað að aukinni umræðu á fjölmörgum sviðum sjávarútvegs og eflt með því tengsl og skapandi hugsun í greininni. Hólmfríður Sveinsdóttir formaður stjórnar Sjávarútvegsráðstefnunnar tók við viðurkenningunni fyrir hönd Sjávarútvegsráðstefnunnar

Þá hlýtur Spakur ehf viðurkenningu fyrir ötult starf við að tengja saman fjárfesta og frumkvöðla í klasanum. Þau Helga Viðardóttir og Jökull Jóhannsson stofnendur Spaks hafa átt ríkan þátt í að brúa bilið á milli þessara aðila og skapa þannig grundvöll fyrir frekara frumkvöðlastarfi í klasanum.

Loks hlýtur fyrirtækið Magnea bátar, sem er nýsköpunarteymi um rafskip í eigu Navis, viðurkenningu fyrir að vekja athygli á mikilvægi umhverfislausna í skiparekstri hérlendis og að hvetja til samstarfs um nýsköpun á því sviði. Samstarf fyrirtækisins og Greenvolt, sem varð til í Húsi sjávarklasans, er gott dæmi um samstarf sem skilað getur umtalsverðum árangri og nýsköpun. Bjarni Hjartarson og Kári Logason tók við viðurkenningunni fyrir hönd Magnea báta.