Samantekt á línuafla í þorski og ýsu sem selt hefur verið óslægt á fiskmörkuðum sýnir að verð nú eru lægri en í fyrra, að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda.
Meðalverð á þorskinum í september og október er 11,2% lægra og 23,3% lægra fyrir ýsu, eins og fram hefur komið í Fiskifréttum. Í krónum talið er verðmunurinn 37 krónur á þorskinum og hvorki meira né minna en 80 krónur sem meðalverð á ýsunni var lægra nú en í fyrra.
Á fyrstu tveim mánuðum fiskveiðiársins 2014 var meðalverðið 345 k.r/kg fyrir ýsu eða 15 kr. hærra en fékkst fyrir þorsk. Í ár er þessu hins vegar öfugt farið meðalverð á ýsunni er 265 kr./kg sem er 28 kr. lægra en þorskurinn skilaði.