Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski og slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 5%.

Jafnframt var ákveðið að hækka verð á karfa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 7%. Verð þetta gildir frá og 1. mars 2011.