Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 1. febrúar 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski , ásamt karfa um 5% . Einnig var ákveðið að hækka viðmiðunarverðið á slægðum og óslægðum ufsa um 1,8% . Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. mars 2017.

Allar verðtöflur