Verð sjávarafurða hefur hækkað töluvert á þessu ári mælt í erlendri mynt og hefur hækkunin verið töluvert umfram hækkun almenns verðlags erlendis. Hækkunin á þriðja ársfjórðungi nam 9,3% milli ára og er það mesta hækkun á 12 mánaða grundvelli síðan á öðrum fjórðungi 2015, þegar verðið hækkaði um 13,3%.
Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.
Á fyrstu þremur fjórðungum ársins var verðið að 8,2% hærra en á sama tímabili í fyrra. Til samanburðar hækkaði verðvísitala Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna á kjöti um 2,5% milli sömu tímabila. Litið yfir lengra tímabil hefur verð íslenskra sjávarafurða hækkað meira en heimsmarkaðsverð á kjöti.
Þannig nemur hækkun verðs á íslenskum sjávarafurðum um 50% frá árinu 2010 en verðhækkun á kjöti nemur á sama tímabili 20%.
Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 192 milljarða króna á fyrstu þremur fjórðungum ársins borið saman við 171,6 milljarða króna á sama tímabil í fyrra og nemur aukningin 11,9%.
Aukið útflutningsverðmæti skýrist að töluverðu leyti af veikingu krónunnar milli ára en gengisvísitala krónunnar á fyrstu þremur fjórðungum ársins var 11,7% hærri en á sama tímabili í fyrra.