Á nýliðnu fiskveiðiári var afli íslenskra skipa rétt rúm milljón tonn. Aflahæsta skipið varð Venus NS, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum.
Heildarafli íslenskra fiskiskipa dróst saman á síðasta fiskveiðiári. Í heild veiddu skipin þá nánar tiltekið 1.044.487 tonn en fiskveiðiárið 2014/2015 veiddust 1.341.230 tonn.
Venus NS varð aflahæsta uppsjávarskipið á síðasta fiskveiðiári með rúmlega 48 þúsund tonna afla og var þar með aflahæsta skipið í íslenska fiskiskipflotanum.
Í flokki skuttogara, bæði ísfisktogara og frystitogara, varð Brimnes RE aflahæst með 12.521 tonn.
Í flokki skipa með aflamark önnur en uppsjávarskipin varð Steinunn SF með mestan afla, 5.153 tonn.
Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.