Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur hafa slitið viðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um kjör vélstjóra.

Þetta kemur fram á vm.is. Þar eru viðræður VM og SVG við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) vegna nýs kjarasamnings við vélstjóra sagðar hafa reynst árangurslausar. Vélstjórar felldu kjarasamning sem borinn var undir atkvæði í vor.

„Þráðurinn var tekinn upp að nýju í haust. Á síðustu fundum hafa viðræður að mestu snúist um tímakaup vélstjóra í landi. Að loknum síðasta fundi aðila, sem haldinn var á þriðjudag, lýstu fulltrúar launamanna yfir árangursleysi.

Það eru mikil vonbrigði að vilji útgerðarmanna til að leiðrétta laun vélstjóra þegar skipin eru bundin við bryggju sé ekki meiri en raun ber vitni. Laun þeirra hafa staðið í stað frá árinu 2019. Á þessum tíma hefur verðlag í landinu hækkað um 43%.

Samninganefnd VM mun nú ráða ráðum sínum og ráðfæra sig við félagsmenn sína um næstu skref,“ segir á vefsíðu félags vélstjóra og málmtæknimanna.