Á ellefta tímanum í morgun barst beiðni um aðstoð frá smábát sem hafði misst vélarafl undan Kötlutanga, rétt undan Víkur í Mýrdal. Áhöfn björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Þórs í Vestmannaeyjum var boðuð út til aðstoðar.

Þór lagði úr höfn í Vestmannaeyjum um ellefuleitið, og setti stefnu til austurs, fulla ferð. Hinn vélarvana bát rak undan hægum vindi. Þór, sem er eitt nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins, var fljótur á vettvang, með ganghraða hátt í 30 sjómílur. Það hamlaði heldur ekki för Þórs að sjólag var gott.

Til Eyja undir kvöld

Um einum og hálfum klukkutíma eftir að Þór lagði úr höfn, var björgunarskipið komið að bátnum. Um borð er einn maður, en ekki er ljóst á þessari stundu hvort hann hafi verið á strandveiðum, eða að flytja bátinn milli staða. Dráttartaug var komið frá Þór í bátinn, og haldið af stað til hafnar í Vestmannaeyjum. Þangað er áætluð koma seinni partinn í dag eða undir kvöld. Þór dregur bátinn á um 10 mílna hraða, en ekki er ráðlegt að reyna frekar á dráttarpolla hins bilaða báts en það, þó svo Þór hafi afl til að draga bátinn hraðar.

Sjólag var gott og áætluð koma til Eyja seinnipartinn eða í kvöld.
Sjólag var gott og áætluð koma til Eyja seinnipartinn eða í kvöld.