Loðnuveiðin fór vel af stað á nýju ári og kom Lundey NS með fyrsta afla ársins, alls rúmlega 900 tonn, til Vopnafjarðar sl. fimmtudag, að því er fram kemur á vef HB Granda. Í kjölfarið fylgdu Faxi RE og Ingunn AK með samtals um 2.500 tonna afla og nú er verið að landa um 1.100 tonna afla Lundeyjar úr annarri veiðiferð ársins. Samkvæmt upplýsingum Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, er veiðisvæðið nú um 100 sjómílur ANA af Vopnafirði. Hann segir að vinnsla hafi gengið vel. Hægt er að frysta loðnu, sem er þyngri en 25 grömm / færri en 40 stk/kg, en ekki er markaður fyrir smærri loðnu til manneldis. Um 25-30% aflamagnsins úr loðnuförmunum fram að þessu hafa verið yfir fyrrgreindum stærðarmörkum og nú er búið að frysta um 1.000 tonn af loðnu á Vopnafirði. Faxi er nú á landleið með um 800 tonn af loðnu og er skipið væntanlegt til Vopnafjarðar síðdegis. Ingunn er að veiðum Leiðindaveður hefur verið á miðunum frá því seinni partinn í gær og eru veðurhorfur ekki góðar fyrir næstu tvo sólarhringana, segir ennfremur á vef HB Granda.