Það sem af er þessu ári hafa þorskveiðar í Noregi verið frjálsar hjá bátum undir 11 metrum. Veiðarnar hafa gengið afar vel og á þeim 11 vikum sem þær hafa staðið yfir eru þeir sem mest hafa veitt komnir yfir 400 tonn. Alls hafa bátarnir fiskað 35 þús. tonn frá áramótum.
Þetta kemur fram í frétt á vef Landssambands smábátaeigenda . Frjálsar veiðar gengu þó ekki til allra smábáta í Noregi, undanskildir voru bátar 11 metrar og lengri.
Að sögn norskra truflaði mikill meðafli af ýsu veiðarnar. Því var gripið til þess ráðs að auka ýsukvótann. Fyrst um 94% og síðan um 180%. Upphafskvóti í ýsu á bátum í flokknum 10 - 11 m var 15 tonn.
Nú hafa norsk stjórnvöld tilkynnt að nóg sé komið, almenn stýring veiða smábáta minni en 11 metra tekur aftur gildi í dag, 25. mars. Þeir sem aflað hafa umfram 131 tonn hafa lokið þorskveiðum 2014, en aðrir geta haldið áfram þar til kvótanum er náð.
Frá og með 7. apríl tekur í gildi 20% meðaflaprósenta við þorskveiðar.
Á vef LS segir ennfremur að veiðiheimildir í þorski til báta minni en 11 metrar hafi í upphafi árs verið 50 tonn en hafi nú verið auknar í 131 tonn. Alls eru 1.173 bátar flokknum undir 11 metrum, en smábátar yfir 11 metrum eru 130. Þorskkvóti þeirra er 95 tonn.