Veira sem veldur sjúkdómnum veirublæði í fiskum hefur verið staðfest. Greining átti sér stað úr líffærum hrognkelsa af villtum uppruna. Er þetta í fyrsta sinn sem þessi veirutegund er greind hér á landi. Veiran er skaðlaus mönnum og berst ekki með fiskafurðum.
Við reglubundið eftirlit og sýnatökur Matvælastofnunar greindi Fisksjúkdómadeild Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum veiruna í hrognkelsum sem voru veidd í Breiðafirði síðla sumars. Hrognkelsin eru hjá Hafró og eru höfð til undaneldis á seiðum sem flytja átti til Færeyja til þjónustu við þarlent laxeldi. Hrognkelsaseiði éta laxalýs af mikilli áfergju sem reynst hefur vel í baráttunni gegn sníkjudýrinu og dregið úr notkun lúsalyfja. Útflutningur slíkra seiða hófst fyrir tæpu ári síðan, en nú verður gert hlé á framleiðslu seiða vegna niðurskurðar og sótthreinsunar á eldisaðstöðu.
Sjá nánar á vef Matvælastofnunar.