Sjávarútvegsráðuneytið hefur í dag framlengt veiðitímabil íslenskrar sumargotssíldar á fiskveiðiárinu 2010/2011. Er þetta gert í því augnamiði að auðvelda makrílveiðar sumarsins 2011, þar sem óhjákvæmilegt er að íslenska sumargotssíldin veiðist sem meðafli við þær veiðar.
Ekki eru allar aflaheimildir yfirstandandi fiskveiðiárs fullnýttar en svo unnt verði að flytja heimildir á milli skipa og stunda makrílveiðarnar með eðlilegum hætti, er þessi breyting á veiðitímabili tegundarinnar nauðsynleg.
Ráðuneytið áréttar að veiðitímabili íslensku sumargotssíldarinnar hafi lokið 30. apríl sl. og þessi breyting nú sé því ekki ætluð til að skip stundi beinar veiðar á tegundinni, heldur einvörðungu sem úrræði vegna meðafla við aðrar veiðar