Álagt almennt veiðigjald á fiskveiðiárinu 2012/2013 nam 4,3 milljörðum og sérstakt veiðigjald nam 10,8 milljörðum en lækkun á sérstaka veiðigjaldinu vegna vaxtakostnaðar gjaldskyldra aðila er 2,8 milljarðar króna. Heildarupphæð almenns og sérstaks veiðigjalds vegna fiskveiðiársins 2012/2013 er því 12,3 milljarðar króna, að því er fram kemur á vef Fiskistofu.
Í upphafi fiskveiðiársins sem hófst 1. september sl. voru veiðigjöld lögð á úthlutað aflamark sem hér segir; almennt veiðigjald 3,4 miljarðar kr. Sérstakt veiðigjald verður 3,0 milljarðar króna. Lækkun á sérstöku veiðigjaldi vegna vaxtakostnaðar gjaldskyldra aðila verður 1,2 milljarðar kr.
Veiðigjöld samtals í upphafi fiskveiðiárs nema því alls 5,2 milljarða króna og koma þau til greiðslu á fjórum ársfjórðungslegum gjalddögum.
Á fiskveiðiárunum 2012/2013 til 2017/2018 geta gjaldskyldir aðilar sótt um lækkun á sérstöku veiðigjaldi vegna vaxtakostnaðar við kaup á aflahlutdeildum fram til 5. júlí 2012, að uppfylltum tilteknum skilyrðum sem fram koma í lögum um veiðigjald og reglugerð um tímabundna lækkun sérstaks veiðigjalds nr. 838/2012. Fiskistofa tekur ákvarðanir um lækkun sérstaks veiðigjalds.