Tilkynningar hafa borist til Fiskistofu í Noregi um að um það bil tíu eldislaxar hafi ratað í fang frístundaveiðimanna á undanförnum dögum.

Að því er segir í frétt salmonbusiness.com hefur Fiskistofa haft samband við eldisfyrirtækin á svæðinu en ekki enn tekist að tengja þessa eldislaxa við neitt þekkt strok úr eldiskvíum þeirra. Laxarnir sem vegi allir um sex kíló hafi veiðst nærri Straumen í sveitarfélaginu Sørfold.

Fiskistofa hvetur nú almenning til að tilkynna öll frekari tilfelli þar sem eldislaxar veiðast og óska helst eftir myndum af fiskunum. Einnig eru veiðimenn beðnir að taka sýni af öllum löxum sem grunur leiki á að séu úr eldi og aðstoði þannig við mat á útbreiðslu og magni þessara mögulegu strokulaxa.