Togarinn Helga María RE 1 landaði á Sauðárkróki á þriðjudaginn eftir að hafa verið að veiðum á hrauninu á Kolbeinseyjarhryggnum. Friðleifur Einarsson skipstjóri segir heildaraflann hafa verið um 120 tonn, mest þorskur.

„Það var fínt að sitja einn að þessu til að byrja með en skipunum fjölgaði svo smám saman og það var kominn töluverður fjöldi skipa á svæðið þegar við fórum,“ segir Friðleifur, en rætt er við hann í frétt á vef Brims hf. „Þarna er nánast eingöngu þorskur ef frá eru taldar ein og ein grálúða sem skila sér í trollið. Ufsi er ekki í veiðinni en hann er brellinn og skýtur upp kollinum þegar minnst varir. Gullkarfa þarf ekki að óttast þarna. Við erum í spennitreyju hvað varðar karfann en verst er að það er alltaf verið að þrengja treyjuna. Hið sama gildir um ýsuna. Við reynum bara að forðast hana og veiða sem meðafla. Það gildir því sama um hana og karfann.“

Þetta var önnur löndun Helgu Maríu á Sauðárkróki á nýju fiskveiðiári, en Friðleifur segir það hafa ýmsa kosti að landa þar.

„Siglingin frá miðunum er um 10 til 11 tímar. Það gerir okkur kleift að stytta túrana og landa oftar. Aflinn er svo fluttur suður til Reykjavíkur með flutningabílum og það tekur ekki nema tæpa fjóra tíma.“

Alls hefur Helga María landað um 270 tonnum á Sauðárkróki á þessu fiskveiðiári, fyrst þann 1. september og svo aftur 6. september. Þar af eru samtals um 250 tonn af þorski.