Í tilefni af Íslensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi gefa Fiskifréttir út sérstakt 164 blaðsíðna tímarit sem sent er til áskrifenda blaðsins og dreift til gesta á sýningunni.
Fjölbreytt efni er í blaðinu, viðtöl við sjómenn, útgerðarmenn og fiskvinnslumenn og greinar af margvíslegu tagi, auk kynningar á mörgu því sem er á sýningunni.