„Fullorðnir skulu borða mest eina máltíð* af kjöti af grindhval og spiki á mánuði samkvæmt færeyskum ráðleggingum,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun . „Konur sem stefna á að verða ófrískar innan næstu þriggja mánaða, eru ófrískar eða hafa barn á brjósti ættu ekki að borða kjöt af grindhval. Stúlkur og konur ættu alfarið að forðast neyslu grindhvalsspiks svo lengi sem þær hafa hug á að eignast börn í framtíðinni. Lifur og nýru grindhvals skal aldrei borða.“
Stofnunin greinir frá því að í kjölfar hvalreka í síðustu viku hafi fyrirspurnir borist um hvort ekki megi nýta afurðir grindhvala til manneldis, þegar ekki tekst að bjarga þeim á flot aftur.
Matvælastofnun leitaði til Færeyinga um ráðleggingar, enda hefur grindhval hefur ekki rekið oft á Íslandsstrendur en í Færeyjum hefur verið hefð fyrir veiði og nýtingu á grindhval.
Á síðustu árum hafa verið gerðar nokkrar rannsóknir á aðskotaefnum í fæðu Færeyinga og áhrif neyslu þeirra á heilsu og þroska. Hópar alþjóðlegra sérfræðinga hafa farið yfir niðurstöðurnar og uppfært ráðleggingar um hve mikil inntaka af þessum efnum með mat er talin örugg. Fyrir 2011 voru ráðleggingarnar byggðar á magni kvikasilfurs í afurðum grindhvals, en ráðleggingar sem gefnar voru út árið 2011 og eru birtar hér að ofan taka einnig mið af magni díoxíns og díoxínlíkra PCB efna.