Landhelgisgæsla Íslands vekur athygli á að samfara slæmri veðurspá og um 972 mb loftþrýstingi verður óvenju mikil sjávarhæð næstu daga .

Umráðamenn skipa, báta og hafna eru beðnir um að hafa varann á.  Á þetta sérstaklega við um hafnir SV-lands.

Sjá flóðaspá fyrir Reykjavík á vef Landhelgisgæslunnar.