Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja í umsögn sinni um frumvarp um breytingu á lögum um strandveiðar að fyrir liggi að auka þurfi verulega við þorskheimildir til strandveiða á strandveiðitímabilinu og að stórauknar strandveiðar leiði til tekjutaps fyrir fiskvinnslur og fiskverkafólk, sjómenn í heilsársstörfum, ríki og sveitarfélög. Gerðar eru margvíslegar athugasemdir við frumvarpið í umsögn SFS sem lesa má í heild sinni hér.
Í umsögninni segir meðal annars:
„Samtökin gera sér grein fyrir því að strandveiðar í einhverri mynd eru komnar til að vera, þrátt fyrir að í þeim felist sóun á verðmætum og að engum þeim markmiðum sem upphaflega var að stefnt hafi verið náð. Það blasir þó við að áform ríkisstjórnarinnar um 48 daga til strandveiða eru fjarri því að vera studd fullnægjandi rökum. Með áformunum á að knýja fram aukinn afla til strandveiða án tillits til gildandi laga, þeirrar meginhugsunar sem fiskveiðistjórnunar- og aflamarkskerfið er grundvallað á, og þess hvaða áhrif það getur haft. Hér ber að benda sérstaklega á þá staðreynd að fjöldi aðila um allt land treystir á heilsársstörf sem tengjast sjávarútvegi með einum eða öðrum hætti. Nefna má sjómenn, landverkafólk, iðnaðarmenn, þjónustufyrirtæki og sveitasjóði. Aukinn afli til strandveiða mun hafa frekari neikvæð áhrif á byggðafestu og afkomu landsbyggðarfólks. Umsagnir sveitarfélaga hringinn í kring um landið um auknar strandveiðar bera þess glöggt merki. Samtökin telja rétt að vara við þeim áhrifum sem boðaðar breytingar geta haft víða á landsbyggðinni.
Samtökin leggja áherslu á mikilvægi þess að stjórnvöld tryggi áframhaldandi ábyrgar og sjálfbærar veiðar. Slíkar veiðar hafa skilað þjóðarbúinu gríðarlegum verðmætum og eru grundvöllur sterks efnahagslífs. Góð staða fiskistofna og ábyrg umgengni við hafið eru lykilatriði til að tryggja að komandi kynslóðir geti áfram nýtt auðlindir hafsins á skynsamlegan hátt. Jafnframt vara samtökin við því að gjörbreytt rekstrarumhverfi sjávarútvegs, hvort sem það felst í hærra veiðigjaldi, auknum strandveiðum eða nýju íþyngjandi regluverki, án samráðs við greinina, eins og virðist vera raunin hjá stjórnvöldum, muni draga úr fjárfestingu og veikja tengdar atvinnugreinar. Slíkt mun óhjákvæmilega leiða til minni nýsköpunar og verðmætasköpunar í íslensku atvinnulífi. Samtökin hafa einnig lýst áhyggjum sínum af þeim vinnubrögðum og viðhorfum stjórnvalda sem hafa komið fram að undanförnu, sérstaklega gagnvart verðmætasköpun í sjávarútvegi. Þessi þróun eykur óvissu sem fyrirtæki í öllum atvinnugreinum þurfa að taka tillit til."
Hér má lesa umsögnina í heild sinni.