Sendiherra Nígeríu á Íslandi, Kemafor Nonyerem Chikwe, boðaði á dögunum til fundar með skreiðarseljendum og fulltrúum Íslandsstofu, í því skyni að vara við ólögmætum viðskiptaháttum með íslenska skreið.

Nú hafa fregnir borist af því að Breti sem svikið hefur nígeríska skreiðarkaupendur árum saman í sýndarviðskiptum með skreið frá Íslandi sé staddur hér á landi í „viðskiptaerindum“. Eru útflytjendur hvattir til að vera á varðbergi að því er segir í frétt frá Íslandsstofu.