Varðskip og flugvél Landhelgisgæslunnar hafa að undanförnu  verið við eftirlit á SV-djúpi og Reykjaneshrygg en þar er nóg að gera um þessar mundir.

Í dag flaug flugvélin  TF-SIF um svæðið og var m.a. haft samband við íslenskt skip á svæðinu sem sagði aflabrögðin vera sæmileg.

Samtals eru þar nú 34 skip að veiðum, 17 rússnesk, 7 íslensk, 4 norsk, 3 spænsk og eitt frá Portúgal, Litháen og Þýskalandi. Sem fyrr eru flest skipin í línudansi við mörk íslensku efnahagslögsögunnar.