Á fyrstu átta mánuðum ársins 2016 voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 156,5 milljarða króna og var verðmæti þeirra 12,5% lægra en á sama tíma árið áður, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.
Á tímabilinu voru fluttar út vörur alls fyrir 359,4 milljarða króna. Verðmæti vöruútflutnings var 72,5 milljörðum króna lægra, eða 16,8%, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 43,6% alls vöruútflutnings. Iðnaðarvörur námu 180,5 milljörðum og voru 50,2% alls útflutnings. Verðmæti þeirra var 22,9% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs.