Fyrstu átta mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 432,3 milljarða króna. Þar af nam útflutningur á sjávarafurðum 178,9 milljörðum, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar .
Fyrstu átta mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 57,9 milljörðum eða 15,5% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 41,4% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 15,3% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.