Verkefnið "Stofnmælinga botnfiska á Íslandsmiðum" (togararall) hefur farið fram frá árinu 1985 en það er mikilvægur þáttur í árlegu mati á stofnstærð botnfiska. Vegna næsta togararalls sem fram fer í mars hefur verið óskað eftir tilboðum í leigu á allt að þremur togurum.
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun einnig taka þátt í rallinu eins og undanfarin ár en ekki er gert ráð fyrir þátttöku rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar. Til margra ára hafa svokallaðir Japans togarar sinnt þessu verkefni skv. útboðum. Vakin er athygli á að stærðarmörk hafa verið rýmkuð miðað við fyrri útboð þannig að fleiri togarar geta tekið þátt.
Sjá nánar um helstu skilyrði á vef Hafró.