Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%.  Jafnframt var ákveðið að lækka verð á karfa um 5%.

Verð þetta gildir frá og með 1. október 2011.