Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag, 1. desember, var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 9%.
Verð á slægðri og óslægðri ýsu var hækkað um 10% og á slægðum og óslægðum karfa um 15%.
Verðbreytingin gildir frá og með deginum í dag.