Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði, er vægast sagt ósáttur við þær hugmyndir að taka árlega 5% aflaheimilda af sjávarútvegsfyrirtækjum. Hann telur að verði þessar hugmyndir að veruleika séu þær til marks um „skipbrot heilbrigðrar skynsemi.“
„Það er víða svo, m.a. hér á Grundarfirði, að það er samnefnari á milli sjávarútvegsfyrirtækja og fólksins. Þetta er ekkert einkamál útvegsmanna og stjórnmálamanna. Þetta snýst fyrst og síðast um fólkið sem starfar í sjávarútvegi. Að stilla þessum hugmyndum upp sem einhvers konar sátt og réttlætismáli er út hött. Þessar hugmyndir gera ekkert annað en að ala á óöryggi og eru stórt skref aftur á bak,” segir Guðmundur Smári í viðtali á vef LÍÚ .
Guðmundur Runólfsson hf. var stofnað árið 1947 og hefur verið kjölfestan í atvinnulífi Grundfirðinga í rúm 60 ár. Guðmundur Smári segist hafa glímt við margskonar áföll í rekstrinum en þessar hugmyndir séu hreinræktað skemmdarverk á atvinnugrein sem kostað hefur gríðarlegum fjármunum til hagræðingar.
„Við höfum lent í aflabresti og vandræðum á mörkuðum. Við höfum glímt við sjómannaverkföll, olíuverðshækkanir – og ég gæti haldið áfram. Það sem greinir þessar hugmyndir frá frá hinum er að hér erum við að glíma við pólitíska skemmdarverkastarfsemi í nafni réttlætis og jöfnuðar, sem á ekkert skylt við ábyrgð, atvinnuöryggi eða virðingu fyrir eignum fólks og fyrirtækja.“