Veiðar uppsjávarveiðiskipa Síldarvinnslunnar gengu vel á nýliðnu ári en vissulega hafði loðnuleysið skýr áhrif á útgerð þeirra. Heildarafli skipanna þriggja var 134.828 tonn og samanstóð hann af makríl, norsk-íslenskri síld, íslenskri sumargotssíld og kolmunna.

Grétar Örn Sigfinnsson, rekstrarstjóri útgerðar Síldarvinnslunnar, segir í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar að ekki sé hægt að vera annað en sáttur við aflabrögðin á árinu 2024.

„Veiðarnar gengu afar vel en auðvitað er loðnunnar sárt saknað. Makrílvertíðin gekk að óskum og er veiðisamstarf skipanna lykilþáttur í því. Nú er komin góð reynsla á samstarf skipa við makrílveiðarnar og ríkir almenn ánægja með það. Veiðar á norsk-íslenskri síld og íslenskri sumargotssíld gengu vel og það sama má segja um kolmunnaveiðarnar. Það veiddist vel af kolmunna í færeyskum sjó, niðri á Rockall og einnig í haust í Rósagarðinum. Nú vonum við bara að loðnuleitin síðar í þessum mánuði beri árangur og menn þurfi ekki að upplifa annað loðnuleysisár,” sagði Grétar.

Hér á eftir er birt yfirlit um makríl-, síldar-, og kolmunnaafla Síldarvinnsluskipanna Barða NK, Beitis NK og Barkar NK á árinu 2024:

Samtals á árinu veiddi Barði NK 30.409 tonn, Beitir NK veiddi 51.241 tonn og Börkur NK 53.178 tonn.
Samtals á árinu veiddi Barði NK 30.409 tonn, Beitir NK veiddi 51.241 tonn og Börkur NK 53.178 tonn.