Menntaskólinn á Tröllaskaga og Háskólinn á Akureyri ætla að vinna saman að því að bæta menntun á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu. Viljayfirlýsing þess efnis hefur verið undirrituð. Markmið samstarfsins er að þróa áfram nýtt nám Menntaskólans í fisktækni og uppfylla þannig þarfir atvinnugreinarinnar fyrir vel menntað starfsfólk. Námið á einnig að veita nemendum mikla möguleika á persónulegri starfsþróun og opna þeim ný tækifæri.
Í fréttatilkynningu um málið segir m.a.: ,,Sjávarútvegsfræði hefur verið kennd með góðum árangri í Háskólanum á Akureyri í tvo áratugi. Skortur hefur hins vegar verið á kennslu á framhaldsskólastigi á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu frá lokun Fiskvinnsluskólans og fisktæknibrautar á Dalvík. Í atvinnulífinu vantar fólk með þekkingu og færni til margra sérhæfðra starfa og til að takast á við vaxandi kröfur um gæði og öryggi afurða. Nýju námi MTR í fisktækni er ætlað að bæta úr þessu og skila faglærðu fólki inn í fiskvinnslufyrirtæki og önnur fyrirtæki sem tengjast sjávarútvegi. Námið verður líka grunnur að framhaldsnámi, meðal annars í sjávarútvegsfræðum við HA.“