Um síðustu helgi var 3.700 tonnum af kolmunna landað í Neskaupstað en kolmunninn var veiddur í færeyskri lögsögu. Síldarvinnsluskipin Barði NK, Beitir NK og Börkur NK héldu síðan til kolmunnaveiða á ný á miðvikudagskvöld.
„Skipin voru að koma á miðin við Færeyjar í gærkvöldi en það eru fá skip á miðunum um þessar mundir. Veðurútlit er ekki sérlega gott, bölvaður lægðagangur í kortunum, en það gerist ekkert ef menn eru ekki á staðnum þegar færi gefst til veiða. Það hefur ekki verið mikil veiði í færeysku lögsögunni að undanförnu en fiskurinn er að ganga suður á bóginn. Auðvitað bíða menn spenntir eftir niðurstöðum yfirstandandi loðnuleitar en ef hún skilar ekki jákvæðri niðurstöðu verður án efa byrjað að undirbúa kolmunnaveiðar á Rockall-svæðinu af fullum krafti,” sagði Grétar Örn Sigfinnsson rekstrarstjóri útgerðar í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.