Ísfisktogarinn Gullver NS landaði á Seyðisfirði í morgun. Aflinn var 115 tonn, mest ýsa og þorskur. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði fyrst hve langur túrinn hefði verið.

„Þetta var langur túr, tæplega vika höfn í höfn. Við gerðum heiðarlega tilraun til að finna ufsa en það var svo sannarlega fátt um fína drætti í þeim efnum. Ufsinn er okkur afar erfiður. Við reyndum einnig að finna karfa með litlum árangri. Við byrjuðum á að fara suður í Hornafjarðardýpi og síðan var reynt á nánast hverri bleiðu norður á Tangaflak. Við tókum aflann að mestu á Gula teppinu og það gekk vel að veiða ýsuna yfir daginn en hún veiðist lítt eða ekki í myrkrinu. Við hófum túrinn í fínu veðri en síðan voru 18-20 metrar þar til í lokin en þá fengum við gott veður á ný,“ segir Hjálmar Ólafur.

Gullver mun halda á ný til veiða á miðvikudag.