„Frá 2008 hefur útflutningur á ferskum þorskflökum og flakaafurðum meira en tvöfaldast að magni til, farið úr 11.000 tonnum í rúm 23.000 tonn í fyrra. Þá voru ferskar afurðir tæplega 19% af magni útfluttra þorskafurða og sem hlutfall af verðmætum voru þær rúm 31% og verður það að teljast mjög góður árangur.“

Svo segir í grein sem Kristján Hjaltason ritar í Fiskifréttir í dag. Hann segir að fyrir  nokkrum árum hefðu fáir trú á að þessi aukning væri möguleg.

„Þessi þróun hefur haldið áfram í ár, en tölur til loka ágúst sýna rúma 5% aukningu borið saman við sama tíma árið 2013. Fréttir af fjárfestingum í nýjum ísfisksskipum vekja von um að þessi aukning muni halda áfram. Sjávarútvegurinn sér augsýnilega mikil tækifæri í þessari vinnslu,“ segir Kristján.

Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum sem komu út í dag.