Aflabrögð hjá togaraflota HB Granda voru með miklum ágætum á árinu sem nú er að líða. Alls nam afli togaranna tæplega 47.700 tonnum og aflaverðmætið var rúmir 9,3 milljarðar króna samkvæmt upplýsingum Birkis Hrannars Hjálmarssonar, rekstrarstjóra togaranna.

Til samanburðar má nefna að aflinn nú er lítið eitt meiri en á árinu 2008 er hann var 47.160 tonn. Aflaverðmætið hefur hins vegar aukist um tæpa 2,2 milljarða í krónum talið eða um 30,7% á milli ára.

HB Grandi gerir út fimm frystitogara og þrjá ísfisktogara til veiða. Afli frystitogaranna nam samtals tæplega 31.900 tonnum og aflaverðmæti þeirra var tæpir 7,5 milljarðar króna á árinu. Ísfisktogararnir voru með samtals 15.800 tonna afla að verðmæti 1.827 milljóna króna. Sjá nánar á vefsíðu HB Granda , HÉR