Ísfisktogarar Síldarvinnslunnar hafa að undanförnu verið að veiðum í erfiðu tíðarfari og þeir hafa gjarnan hrakist af einum miðum á önnur undan veðri. Síldarvinnslansegir frá á vef sínum:

Gullver

Gullver NS kom til Seyðisfjarðar að afloknum stuttum túr sl. laugardag og var afli skipsins 60 tonn, mest þorskur og ýsa. Steinþór Hálfdanarson skipstjóri segir að ýsan hafi fengist í Litladýpi og þorskurinn í Reyðarfjarðardýpi og á Gerpisflaki. Segir hann að veðrið hafi vægast sagt verið hundleiðinlegt allan túrinn. Gullver hélt til veiða á ný síðdegis í gær.

Bergur

Bergur VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gær og segir Jón Valgeirsson að veiðiferðin hafi verið erfið þó ekki sé hægt að kvarta undan aflanum. „Það var vond bræla allan tímann. Veðrið var sérstaklega slæmt úti í kanti og því vorum við grunnt allan tímann. Segja má að við höfum verið á flótta undan veðri alla veiðiferðina. Við byrjuðum á Öræfagrunni í haugabrælu, fórum þaðan upp undir Ingólfshöfða í skárra veður en brátt gerði vitlaust veður þar og þá var haldið í Meðallandsbugtina og klárað þar í skítaveðri,“ segir Jón.

Vestmannaey

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey VE, hefur í reynd sömu sögu að segja og Jón. „Þetta var alger brælutúr vægt til orða tekið. Þó verður að segjast að það fiskaðist ágætlega og við lönduðum fullfermi í Eyjum í gær. Við hófum veiðar í Skeiðarárdýpi og á Öræfagrunni en veðrið var svo vitlaust að við fluttum okkur á Ingólfshöfðann. Þaðan var svo flúið í Meðallandsbugtina út af Skatárósum. Þar var heldur minni alda en vindurinn hins vegar jafn mikill og annars staðar. Um tíma var veðrið alveg snarklikkað og ég sá vindmælirinn fara upp í 35 metra. Þegar mest gekk á var ástandið um borð afar erfitt en það var allt á fleygiferð. Meðal annars sprakk upp kæliskápur hjá kokkinum og allt fór út um allt. Það var heilmikil verkun á elhúsinu eftir ósköpin. Það er verulega notalegt að koma í land að loknum túr sem þessum,“ segir Egill Guðni.

Gullver hélt á ný til veiða síðdegis í gær, en Bergur og Vestmannaey munu væntanlega láta úr höfn á fimmtudag eða föstudag en það fer eftir veðri.