Nokkur fyrirtæki í framleiðslu, dreifingu og markaðssetningu á ferskum þorskhnökkum hafa látið framkvæma vistferilsgreiningu (Life Cycle Assessment) á afurðum sínum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að umhverfisálag ferskra íslenskra þorskhnakka er tiltölulega lágt í samanburði við okkar helstu samkeppnisaðila í sjávarútvegi og mun lægra en frá kjötafurðum.

Í seinni tíð hefur krafan um sjálfbæra nýtingu og lágmörkun umhverfisáhrifa í framleiðslu á matvælum aukist mikið á mörkuðum sem eru mikilvægir fyrir ferskfiskafurðir okkar Íslendinga.

Kröfum um sjálfbæra nýtingu fiskistofna hefur verið svarað með umhverfisvottunum, en upplýsingar um heildarumhverfisáhrif íslenskra sjávarafurða og samanburð við samkeppnisvörur hefur skort.

Afurðir frá fjórum framleiðendum og af sjö mismunandi fiskiskipum sem seldar eru í Bretlandi og í Sviss voru rannsakaðar og niðurstöðurnar bornar saman við sambærilegar rannsóknir sem gerðar hafa verið annarsstaðar í heiminum. Nokkur munur er á sótspori einstakra skipa eftir stærð, veiðarfærum, kvótastöðu og útgerðarmynstri, en meðaltalsniðurstöður rannsóknarinnar sýna að sótspor ferskra þorskhnakka er um 0,8 Kg CO2 ígildi / Kg hnakkar þegar búið er að vinna aflann. Flutningur með skipi til Bretlands eða Sviss bætir frekar litlu við sótsporið, en ef afurðirnar eru fluttar með flugi getur sótsporið allt að þrefaldast.Greint er frá þessu á vef Matís .