Fyrirtækið Íslensk bláskel og sjávargróður ehf. í Stykkishólmi hefur hafið tilraunaútflutning á þurrkuðum þara til Danmerkur, Noregs og Spánar. Símon segir að þarinn sé yfirleitt seldur þurrkaður enda sé það langbesta geymsluaðferðin.

„Markaðurinn fyrir þaraafurðir er mjög stór, við teljum okkur vera með mikil gæði og viljum því fá góð verð fyrir vörurnar okkar. Þess vegna forðumst við alla óþarfa milliliði og reynum til dæmis að selja beint inn á veitingahúsin. Þetta er allt að koma en gerist í rólegheitunum,“ segir Símon Sturluson einn eigendanna í samtali á vef Matís .

Fyrirtækið, sem var stofnað árið 2007, safnar og ræktar bláskel og safnar sjávargróðri með vistvænum og sjálfbærum hætti á nokkrum stöðum í Breiðafirði. „Við höfum átt ánægjulegt samstarf við Matís um nokkurra ára skeið. Þar eru margir mjög færir vísindamenn með víðtæka reynslu sem er gott að leita til,“ segir Símon.